12. jan. 2011

Íslendingar eru orkufrekasta þjóð í heimi

,,Er notkun á mann nú sú mesta sem þekkist í heiminum." Þetta segir um orkunotkun Íslendinga í kafla 2.5 í nýrri raforkuspá orkuspárnefndar. Upplýsingarnar byggja á tölum frá 2007 þegar Fjarðarál var einungis komið með tiltölulega litla notkun. Eins og sjá má á mynd 2.13 í spánni vorum við samt með meira en helmingi meiri orkunotkun á mann en allar aðrar þjóðir nema Noregur. Við höfum síðan tekið ennþá lengra fram úr öðrum þjóðum eftir að Fjarðarál komst í fulla framleiðslu. Samt heimta hagsmunasamtökin ASÍ og SA að atvinnustigi í landinu verði haldið uppi með byggingu fleiri virkjana. Hvenær ætli orkuframleiðsla í landinu verði orðin nægilega mikil að mati þessara samtaka?